Jólaflugan 2025 – Lax
$75.97
$131.43
Jólaflugan 2025 Hér er hann kominn, jólasveinninn. Við kusum að kalla hann Flugusníki. Við erum ekki sannfærð en það má reyna þessa gerðarlegu þurrflugu í sumar. Ef einhver gerir það erum við til í að fá mynd. En það má líka bara geyma Flugusníki með Snæfinni og jólatréinu sem eru jólaflugur síðustu ára. Við vonum að þú hafir haft gaman að jóladagatalinu þínu í desember, kynnst nýjum flugum og jafnvel lært eitthvað.Við höfum haft gaman að þessu í desember og erum strax farin að hugsa um jóladagatalið 2026. Ef þú átt flugu sem þig langar til að deila í jóladagatali næsta árs máttu endilega vera í sambandi við okkur í Veiðihorninu, Síðumúla 8. Starfsfólk Veiðihornsins sendir þér sínar bestu óskir um gleðilega hátíð.Megi nýtt ár færa þér hamingju, heilsu og fallega veiði. ps. Nöfn allra sem keyptu jóladagatölin okkar í forsölu lentu í potti. Við drógum eitt nafn úr pottinum í gær og ætlum að gefa þeim heppna / þeirri heppnu splunkunýja flugustöng frá Sage, stöng sem kemur á markaðinn í janúar eða febrúar og við megum ekki segja meira frá nú. Stöngin er samt komin í hús og við hringdum í dag í hina heppnu Völu Rut og létum hana vita af því að hún mætti kíkja á okkur og skoða stöngina en hún fengi hana samt ekki afhenta fyrr en SAGE í USA tilkynnti um komu hennar á markaðinn sem verður nú í byrjun árs. Vala var að vonum hæstánægð, sagðist ekki veiða sjálf en maðurinn hennar fengi stöngina. Hamingjuóskir til ykkar Vala Rut og veiðimaðurinn hennar. Við vonum að það verði allt í keng í sumar.Verið velkomin til okkar í Síðumúlann
Einkrækjur