Black and Blue
$35.48
$63.86
1. desember 2023 er runninn upp. Í dag má opna fyrsta boxið í jóladagatalinu þínu 24 laxaflugur til jóla. Heppnin er með þér því miklu færri fengu jóladagatal en vildu. Nöfn þeirra sem pöntuðu jóladagatalið í forsölu lentu í lukkupotti. Við drögum eitt nafn úr pottinum síðar í mánuðinum og færum þeim heppna / þeirri heppnu vandaða jólagjöf á aðfangadag jóla.Góða skemmtun í desember. Black and Blue Black and Blue er frábær miðsumarsfluga en þessi vinsæla fluga er fáanleg hnýtt í fjölmörgum útfærslum.Vinsælust er hún líklega hnýtt í „Longtail“ útfærslu á þríkrækju. Hér er Black and Blue hnýtt léttklædd á einkrækju og í þessari útfærslu er hún frábær hvort heldur sem þú veiðir hefðbundið á hana eða bregðir á hana Portlandsbragði og myndar með henni gáru á vatnsflötinn.Svo leyndarmáli sé ljóstrað upp er ekki ólíklegt að þú eigir eftir að finna fleiri veiðnar laxaflugur hnýttar í þessari útfærslu í dagatalinu þínu. Sjáum til. Ef þú vilt hnýta nokkur eintök fyrir næsta sumar þá er hér uppskrift sem styðjast má við: Krókur – Ahrex HR414Tvinni – Semperfli Classic Waxed Thread eða Semperfli Nano Silk í allra minnstu stærðirnarBroddur – Ávalt, gulllitað UNI TinselStél – Nokkrar fanir úr hausfjöður af GullfasanaVöf – Ávalt gulllitað UNI TinselBúkur – Flatt silfurlitað UNI TinselVængur – Nokkur hár úr svartlituðu íkornaskottiHringskegg – Blálituð hanahálsfjöðurHaus – Svartur
Einkrækjur