Frances Royal (Kóngablá)
$46.85
$74.95
Frances Royal (Kóngablá) Blá Frances, stundum kölluð Royal Frances vegna kóngabláa litarins. Þessi útfærsla Frances flugunnar varð til í Veiðihorninu um aldamótin en fyrir tilviljun voru staddir þar tveir viðskiptavinir á sama tíma og kviknaði hugmyndin að bláa litnum uppúr samtali þeirra tveggja. Blá Frances hefur heldur betur sannað sig. Þegar þú kemur í veiðihús og sérð að undanfarið hafi mikið veiðst á svarta Frances skaltu velja þá bláu og það er nánast hægt að lofa því að hún gefi þér fisk. Í þurrkum síðustu ára hefur Blá frances sérstaklega verið veiðin, hnýtt sem örfluga í stærðum 14, 16 og 18. Sjá mynd hér að neðan.
Þríkrækjur