Green Butt Longtail
$40.92
$69.98
Green Butt Longtail Hönnuður: John Leyden Green Butt er ein af betri laxaflugum. Flugan er hnýtt í ýmsum útgáfum; oft á silfurlitaða örkróka en einnig á hefðbundnar tví- og þríkrækjur ýmist með stuttu stéli eða í „longtail“ útgáfu eins og hér, með löngu stéli. Green Butt hnýtt með löngu stéli á svarta þríkrækju í stærðum 12 eða 14 eins og hér er oft algjörlega ómótstæðileg. Taktu með þér Green Butt í nokkrum útfærslum í næstu veiðiferð. Gæti reddað túrnum! Hér er uppskrift sem styðjast má við: Green Butt LongtailKrókur – Ahrex HR490B (svartur), HR490S (silfur), HR490G (gull).Tvinni – Svartur UNI 8/0.Stél – Fínleg hár af svartlituðum hjartardindli ásamt nokkrum Krystalflash þráðum.Broddur – Ávalt UNI silfurtinsel og flúrgrænt Globrite.Vöf – Ávalt UNI silfurtinsel.Búkur – Svart UNI flos.Skegg – Fanir af svartlitaðri hanafjöður.Vængur – Hár úr svartlituðu íkornaskotti.Haus – Svartur.
Þríkrækjur