BH Black Killer
$46
$88.32
Killer Killer ásamt Peacock eru líklega einhverjar þekktustu innlendu silungapúpurnar. Upphaflega er flugan hönnuð 1975 (Heimild fos.is) og því að verða hálfrar aldar gömul. Þegar sá sem þetta ritar (Óli í Veiðihorninu) kynntist Killer fyrst var hún gjarnan hnýtt án kúlu en með blývafningi undir klæðningu til þyngingar og undantekningarlaust hnýtt á tvíkrækju. Killer veiðir jafnt urriða sem bleikju en hefur einnig verið gjöful í laxveiði, veidd andstreymis síðsumars í litlu vatni. Þá má gjarnan þyngja Killerinn enn frekar með kúlu úr Tungsten. Killer veiðir silung frá því snemma á vorin þangað til seint á haustin. Killer er oftast hnýttur með rauðri rönd en einnig má hnýta hann án rauðu randarinnar líkt og flugan sem fylgir boxinu þínu í dag. Til gamans má geta þess að síðan Killer leit dagsins ljós hefur þessi gjöfula fluga verið hnýtt í fjölmörgum litum og afbrigðum. Hér að neðan sýnir Ívar Örn Hauksson í Flugusmiðjunni hvernig Killer er hnýttur.
Púpur