Greys Bank Bag
$20.5
$40.18
Greys Bank Bag. Grá veiðitaska með mörgum vösum úr slitsterku efni og með þykkri axlaról. Stórt aðalhólf með netavösum á baki og í hliðum. Rennilásahólf innan í loki. Í milliloki er svampur sem hægt er að næla flugum í. Hann er festur á töskuna með frönskum rennilás þannig að hægt er að losa svampinn. Þetta hólf er lokað með einni smellu. Ofan á loki töskunnar eru tvö lítil hólf, þau eru ætluð sem geymsla fyrir fluguhjól eða aukaspólur í fluguhjól. Þessi hólf eru lokuð með rennilás. Handfangið ofan á töskunni er með þykkum svampi. Á hliðum töskunnar eru hólf með rennilásum og utan á þeim vösum eru minni netahólf. Aftan á töskunni er rennilásahólf og í því er vatnsheld hetta sem hægt er að bregða yfir töskuna þegar rigni. Botninn er vatnsheldur og það fylgir þægileg axlaról.
Töskur